7 apr. 2015Í dag, þriðjudaginn 7. apríl, verða afhent umferðarverðlaun fyrir seinni hluta Domino´s deildar kvenna tímabilið 2014-2015 og verðlaun afhent til besta dómarans í Domino's deildum karla og kvenna í seinni hlutanum einnig. Afhendingin fer fram í íþróttamiðstöðinni Laugardal kl. 12.00 á 3. hæð í fundarsal E. Að auki verður úrslitakeppninn í Domino's deild kvenna kynnt sem hefst á morgun miðvikudag með fyrstu leikjunum í báðum viðureignum. Á fundinn mæta því verðlaunahafarnir sem fá umferðarverðlaun auk þess sem helstu fjölmiðlar landsins mæta og þar verða þjálfarar og leikmenn allra liða í úrslitakeppninni á staðnum og til taks fyrir viðtöl og myndatökur.