28 mar. 2015
Snæfelsstúlkur fengu afhendann deildarmeistaratitil sinn eftir leik þeirra gegn Hamar í Domino's deildinni fyrr í dag. Leikurinn fór fram á heimavelli Snæfells og í leikslok afhenti formaður KKÍ, Hannes S. Jónsson, og varaformaður KKÍ, Guðbjörg Norðfjörð, liði Snæfells verðlaun sín. Til hamingju Snæfell!