27 mar. 2015Í kvöld er komið að fyrstu tveim leikjunum í 8-liða úrslitum 2. deildar karla. Leikið var í tveim riðlum í vetur og komust fjögur efstu lið úr hvorum riðli í úrslit. Leikið verður í kross og fara sigurvegarar fyrstu leikja í undanúrslit. Úrslitaleikurinn mun fara fram þann 18. apríl. Röð liða varð eftirfarandi í vetur: A-riðill: Leiknir R.(1), Ármann (2), ÍG (3) og Hekla (4). B-riðill: ÍB (1), Reynir S. (2), KV (3) og Afturelding (4). 8-liða úrslitin 2015 verða því eftirfarandi 27. mars: Ármann-KV kl. 18.00 í Kennaraháskólanum. Reynir S.-ÍG kl. 19.00 í Sandgerði. 28. mars: Leiknir R.-Afturelding kl. 14.00 í Kennaraháskólanum. 29. mars: Íþróttafélag Breiðholts-Hekla kl. 15.00 í Hertz-hellinum, Seljaskóla