26 mar. 2015
Í kvöld er komið að upphafi úrslitakeppni 1. deildar karla 2015. Höttur varð deildarmeistari og fer beint upp í Domino's deildina að ári. Næstu fjögur lið, lið í sætum 2.-5. keppa fjögurra liða úrslitakeppni um eitt laust sæti að auki í deild þeirra bestu á næsta ári. Leikið er heima og að heiman til skiptis þar til lið hefur unnið tvo leiki. Þau lið sem fara áfram í úrslit leika aftur eins og að nýju þarf tvo sigurleiki til að tryggja sér sigur í úrslitunum. Leikir kvöldsins Hamar-ÍA (Leikur 1) Hamar hafnaði í 2. sæti og leikur gegn ÍA sem urðu í 5. sæti. Leikurinn fer fram í Hveragerði og hefst kl. 19.15. Sýnt verður beint frá leiknum á Hamar-TV: [v+]http://www.hamarsport.is/korfubolti/hamar-tv/ [v-]www.hamarsport.is[slod-] FSu-Valur (Leikur 1) FSu höfnuðu í 3. sæti og leika gegn Val sem varð í 4. sæti. Leikurinn fer fram í Iðu á Selfossi og hefst kl. 19.15. Allir leikir í úrslitakeppninni verða að venju í beinni tölfræðilýsingu á kki.is.