21 mar. 2015Í kvöld verður deildarmeistarabikarinn afhentur í 1. deild kvenna. Njarvík mun fá afhentan deildarmeistaratitil sinn fyrir sigur í 1. deild kvenna tímabilið 2014-2015 eftir leik þeirra í Ljónagryfjunni, Njarðvík, gegn Þór frá Akureyri. Guðbjörg Norðfjörð, varaformaður KKÍ, afhendir Njarðvík verðlaunin sín.