18 mar. 2015Aga- og úrskurðarnefnd tók tvö mál fyrir í vikunni. Úrskurður nr. 27/2014-2015. Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Birgir Örn Birgisson, þjálfari KFÍ, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar eftir leik Breiðabliks og KFÍ í 1. deild karla, sem leikinn var þann 6. mars 2015. Mál nr. 28/2014-2015: Með vísan til ákvæðis b. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Snæfells og Hauka í Dominos-deild kvenna, sem leikinn var 15. mars 2015". Úrskurðirnir taka gildi á hádegi á fimmtudag.