17 mar. 2015
Umferðarverðlaun fyrir seinni hluta Domino's deildar karla á þessu tímabili voru afhent núna kl. 12.00 í íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Jafnframt var efnt til blaðamannafundar fyrir úrslitakeppnina sem hefst á fimmtudaginn kemur. Þjálfarar og leikmenn allra liða sem verða í eldlínunni voru mættir og fóru í viðtöl og myndatökur á fundinum fyrir átökin sem framundan eru. Eftirtaldir leikmenn og þjálfarar skipa úrvalsliðið Domino's deildar karla í seinni hluta keppnistímabilsins 2014-2015: Pavel Ermolinskij · KR Emil Barja · Haukar Stefan Aaron Bonneau · Njarðvík Darrel Keith Lewis · Tindastól Grétar Ingi Erlendsson · Þór Þorlákshöfn Dugnaðarforkurinn: Kristinn Marinósson · Haukar Besti þjálfarinn: Israel Martin · Tindastóll Besti leikmaðurinn (MVP): Stefan Aaron Bonneau · Njarðvík Hægt er að skoða [v+]http://www.kki.is/skjol/umferdseinni_urslit_2015_web.pdf [v-]tölfræðihefti og samantekt fyrir úrslitakeppnina hérna[slod-] sem prentað var út fyrir fundinn.