12 mar. 2015Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir tvö mál í vikunni. Mál nr. 24/2014-2015: Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Antalnan Mazonan, leikmaður Stál-Úlfs, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Reynis Sandgerði og og Stál-Úlfs í 2. deild Mfl. karla, sem leikinn var 27. febrúar 2015". Mál nr. 25/2014-2015: Með vísan til ákvæðis c. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Árni Árnason, leikmaður KR-b, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Hauka-b og KR-b á Ísl. móti b-liða meistarafl. karla, sem leikinn var 1. mars 2015". Úrskurður nr. 26/2014-2015: Með vísan til ákvæðis c. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Tracy Smith, leikmaður Skallagríms, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Skallagríms og Njarðvíkur í Mfl. karla, sem leikinn var 05. mars 2015. Úrskurðir taka gildi á hádegi á fimmtudögum.