8 mar. 2015
KR mun fá afhendann deildarmeistaratitil sinn fyrir sigur í Domino's deild karla tímabilið 2014-2015 í kvöld eftir leik þeirra í DHL-höllinni, Frostaskjóli, gegn Þór Þorlákshöfn. KR hefur nú þegar tryggt sér titilinn og að venju er hann afhendur á heimavelli deildarmeistara hvers árs eftir að lið hefur tryggt sér hann. Það verða þau Guðbjörg Norðfjörð, varaformaður KKÍ, og Rúnar Birgir Gíslason, stjórnarmaður KKÍ, sem afhenda KR verðlaunin sín.