27 feb. 2015Um helgina munu yngri landsliðin koma saman til æfinga. Æfingahóparnir telja 15-17 manns hjá U16 og U18 liðunum og 20 í U15 liðunum. Eftir þessa æfingatörn verður skorið niður í 12 manna lið fyrir NM en þangað fara U16 og U18 liðin um miðjan maí. Í framhaldinu verða U15 ára liðin valin en þau fara í júní til Kaupmannahafnar á alþjóðlegt mót eins og undanfarin ár. Æfingar liðanna um helgina eru eftirfarandi: U18 karla Njarðvík laugardag kl. 10-12 og 14.00-15.40 DHL sunnudag kl. 08-10 og 12-14 U16 drengja Njarðvík laugardag kl. 12-14 og 15.40-17.20 DHL sunnudag kl. 10-12 og 14-16 U18 kvenna Akurskóli föstudag kl. 18.00 Akurskóli laugardag kl. 09.30-11.30 og Keflavík-b 13.30-15.30 U16 stúlkna Keflavík-b laugardag kl. 11.30-13.30 og 15.30-17.30 Grindavík sunnudag kl. 10-12 og 14-16 U15 drengir Kennó laugardag kl. 09.30-11.30 og Álftanes 13.00-14.30 Kennó sunnudag kl. 10-12 og 13-15 U15 stúlkur æfa næstu helgi.