25 feb. 2015Sigmundur Már Herbertsson, FIBA Europe dómari KKÍ, hefur verið tilnefndur af evrópska körfuknattleikssambandinu til að dæma á lokamóti EM, EuroBasket 2015, í haust. Þessi útnefning er mikil viðurkenning fyrir íslenskan körfuknattleik og íslenska dómara og er því enn einn nýr kaflinn skrifaður í körfuknattleikssögu Íslands. Þetta er í fyrsta sinn sem dómari frá Íslandi hlotnast sá heiður að dæma á lokamóti á vegum FIBA hjá A-landsliðum og er útnefningin til marks um hversu vel Sigmundur Már hefur staðið sig á undanförnum árum í dómarastörfum fyrir FIBA Europe. Ekki er sjálfsagt að þátttökuþjóðir eigi hæfa dómara til að senda og eru dæmi um að þjóðir sem verða á EuroBasket nú í haust hafi ekki fengið dómara sem fulltrúa sinnar þjóðar á EuroBasket 2015. Ekki er komið á hreint hvar Sigmundur dæmir en ljóst er að hann verður ekki í sama riðli og Ísland í Berlín. Það mun þá verða í Frakklandi, Lettlandi eða Króatíu. Hér fyrir neðan er dómaralistinn frá FIBA Europe en þar eru allir bestu dómarar Evrópu sem hafa verið í eldlínunni á síðustu stórmótum og Euroleague að undanförnu: Amit Balak, Ísrael Jean-Charles Collin, Frakkland Renaud Geller, Belgía Spyridon Gontas, Grikkland Aare Halliko, Eistland Sigmundur Már Herbertsson, Ísland Sinisa Herceg, Króatía Tomas Jasevicius, Litháen Milivoje Jovcic, Serbía Milos Koljensic, Svartfjallaland Marcin Kowalski, Pólland Saverio Lanzarini, Ítalía Olegs Latisevs, Lettland Robert Lottermoser, Þýskaland Petri Mantyla, Finnland Igor Mitrovski, Makedónía Rustu Nuran, Tyrkland Petar Obradovic, Bosnía Emio Perez, Spánn Saso Petek, Slóvenía Ilya Putenko, Rússland Anthonie Sinterniklass, Holland Robert Vyklicky, Tékkland Sergiy Zashchuk, Úkraína Ilija Belosevic, Serbía Matej Boltauzer, Slóvenía Christos Christodoulou, Grikkland Gentian Cici, Albanía Igor Dragojevic, Svartfjallaland Benjamin Jimenez-Trujillo, Spánn Apostolos Kalpakas, Svíþjóð Luigi Lamonica, Ítalía Jugis Laurinavicius, Litháen Emin Mogulkoc, Tyrkland Sreten Radovic, Króatía Fernando Rocha, Portúgal Borys Ryzhyk, Úkraína Sérgio Silva, Portúgal Eddie Viator, Frakkland Jakub Zamojski, Pólland FIBA Europ Referee Instructors verða þeir Davorin Nakic, Króatíu, Alan Richardson, Englandi, Ulrich Sledz, Þýskalandi og Alessandro Teofili, Ítalíu en allir dómarar fara á tveggja daga undirbúningsnámskeið fyrir mót. KKÍ óskar Sigmundi til hamingju með árangurinn.