6 feb. 2015Powerade-bikarúrslita leikir allra flokka fara fram helgina 20.-22. febrúar í Laugardalshöll. Í fyrsta sinn verða leikir yngri flokka haldnir hátíðlegir sömu helgi og úrslitaleikir meistaraflokka og fara þeir fram við sömu aðstæður og umgjörð og úrslitaleikir meistaraflokkana. RÚV sýnir beint frá úrslitaleikjum meistaraflokka kvenna og karla á laugardeginum og SportTV.is mun sýna beint frá öllum öðrum leikjum helgarinnar. Það er því mikil hátíð framundan hjá íslensku körfuknattleikshreyfingunni og skorum við á körfuknattleiksaðdáendur að mæta á leikina og sjá framtíðarleikmenn landsins eigast við í úrslitaleikjum sinna flokka. Í gegnum tíðina hafa þessir leikir verið frábær skemmtun og oft mikil spenna og flott tilþrif í boði fyrir áhorfendur. Poweradebikarúrslit 2015 · Leikjadagskrá helgarinnar Föstudagur 20. febrúar 18.30 10. flokkur stúlkna KEFLAVÍK - ÁRMANN/HRUNAMENN 20.30 Stúlknaflokkur HAUKAR - KEFLAVÍK Laugardagur 21. febrúar 09.30 10. flokkur drengja HAUKAR - KR 13.30 Mfl. kvenna GRINDAVÍK - KEFLAVÍK 16.00 Mfl. karla STJARNAN - KR 19.00 Drengjaflokkur HAUKAR - TINDASTÓLL Sunnudagur 22. febrúar 10.00 9. flokkur drengja HAUKAR - STJARNAN 12.00 9. flokkur stúlkna GRINDAVÍK - KEFLAVÍK 14.00 11. flokkur drengja KR - GRINDAVÍK/ÞÓR Þ. 16.00 Unglingafl. kvenna HAUKAR - KEFLAVÍK 18.00 Unglingafl. karla NJARÐVÍK - HAUKAR eða FSu (leikið miðvikudag)