28 jan. 2015Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir þrjú mál á fundi sínum. Úrskurður nr. 15/2014-2015: Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Magnús Bjarki Guðmundsson, leikmaður ÍA, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik FSU og ÍA í Mfl. karla, sem leikinn var 22. janúar 2015. Mál nr. 16/2014-2015: Með vísan til ákvæðis a. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Sigmar Logi Björnsson, leikmaður Breiðabliks, sæta áminningu vegna háttsemi sinnar í leik Hattar og Breiðabliks í 1. deild meistarflokks karla, sem leikinn var 25. janúar 2015. Mál nr. 17/2014-2015: Með vísan til ákvæðis c. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hinn kærði, Breki Gylfason, leikmaður Breiðabliks, sæta 1 leiks/leikja banni vegna háttsemi sinnar í leik Hattar og Breiðabliks í 1. deild meistarflokks karla, sem leikinn var 25. janúar 2015. Úrskurðir aga- og úrskurðarnefndar taka gildi á hádegi á fimmtudögum.