21 jan. 2015Aga- og úrskurðarnefnd tók fyrir eitt mál á fundi sínum í vikunni. Úrskurður nr. 14/2014-2015. Með vísan til ákvæðis c. liðar 1. mgr. 13. gr. reglugerðar um aga - og úrskurðarmál skal hin kærða, Lele Hardy, leikmaður Hauka, sæta eins leiks banni vegna háttsemi sinnar í leik Grindavíkur og Hauka í 8 liða úrslitum Bikarkeppni KKÍ - kvenna - meistaraflokki, sem leikinn var þann 17. janúar 2015. Úrskurðurinn tekur gildi á hádegi á fimmtudag.