7 jan. 2015Einar Árni Jóhannsson, þjálfari U18 ára landsliðs karla, hefur verið ráðinn yfirþjálfari yngri landsliða og afreksstarfs KKÍ. Einar Árni hefur mikla reynslu af þjálfun og þjálfun yngri landsliða KKÍ og mun hann veita öðrum þjálfurum yngri landsliðanna ráðgjöf, leggja ákveðnar grunnlínur í allt starfið, samræma áherslur og hafa yfirumsjón með skipulagi og fleira sem við kemur landsliðsmálum KKÍ og afreksstarfinu það er úrvals-og afreksbúðum. Framundan er stórt landsliðssumar hjá KKÍ þar sem U15 ára liða drengja og stúlkna taka þátt í alþjóðlegu móti í Kaupmannahöfn auk þess sem U16 og U18 lið karla og kvenna fara öll á NM í Svíþjóð og einnig taka þau öll þátt í Evrópukeppni FIBA Europe í sumar.