3 jan. 2015Jón Arnór er íþróttamaður ársins 2014 en það var tilkynnt nú rétt í þessu á hinu árlega hófi þar sem íþróttamaður ársins er krýndur. Þetta er í annað sinn sem körfuknattleiksmanni hlotnast sá heiður en áður hafði Kolbeinn Pálsson hlotið heiðurinn árið 1966. Íslenska karlalandsliðið var einnig útnefnt sem lið ársins. Þetta er í 9. sinn sem Jón Arnór er á topp 10 í kjöri íþróttamanns ársins en hér fyrir neðan má sjá í hvaða sætum hann hefur lent í kjörinu í þau skipti: 2002 - 7. sæti 2003 - 5. sæti 2004 - 8. sæti 2005 - 4. sæti 2007 - 4. sæti 2008 - 10. sæti 2009 - 6. sæti 2013 - 4. sæti 2014 - 1. sæti Besti árangur körfuboltamanna í kjöri á Íþróttamanni ársins 1956-2014: Íþróttamaður ársins Jón Arnór Stefánsson 2014 Íþróttamaður ársins Kolbeinn Pálsson 1966 2. sæti Þorsteinn Hallgrímsson 1964 2. sæti Pétur Guðmundsson 1981 3. sæti Jakob Örn Sigurðarson 2011 4. sæti Jón Arnór Stefánsson 2005 4. sæti Jón Arnór Stefánsson 2007 4. sæti Helena Sverrisdóttir 2009 4. sæti Jón Arnór Stefánsson 2013 5. sæti Þorsteinn Hallgrímsson 1965 5. sæti Pétur Guðmundsson 1986 5. sæti Jón Arnór Stefánsson 2003 Til hamingju Jón Arnór!