19 des. 2014Nú er Íslandsmótið hálfnað hjá yngri flokkunum. Í minnibolta og upp í 10. flokk er Íslandsmótið spilað í fjölliðamótum. Tvær af fjórum umferðum eru búnar hjá öllum flokkum og eru mótin orðin alls 68. Er þetta gríðarlegur fjöldi móta víðsvegar um landið en alls tóku 23 félög að sér að sjá um fjölliðamót en leikið var í 27 mismunandi íþróttahúsum. Næstu fjölliðamót fara fram helgina 7.-8. febrúar en síðasta fjölliðamótshelgin er 2.-3. maí þegar 8. flokkur klárar.