
8 des. 2014Sögulegri stund var nú að ljúka þegar nafn Íslands var í einni skálinni þegar dregið var í riðla fyrir lokamót Evrópukeppninnar í körfubolta, EuroBasket 2015. Ísland var dregið í B-riðil með nokkrum af sterkustu körfuknattleiksþjóðum heims. Leikið verður í Berlín, og fyrir utan gestgjafana frá Þýskalandi, leika einnig með okkur í riðli landslið Spánverja, Serbíu, Tyrklands og Ítalíu. Mótið fer fram 5-.20. september næsta haust þar sem riðlakeppnin mun fara fram 5.-12. september. Eftir það taka við 8-liða úrslit og úrslitaleikir. Spánn hefur verið mjög ofarlega á síðustu mótum á HM, EM og Ólympíuleikum síðustu ára og skemmst er frá því að segja að Serbía lenti í öðru sæti á HM í sumar eftir úrslitaleik gegn Bandaríkjunum. Tyrkir og Ítalía hafa verið mjög öflug og sömuleiðis Þýskaland. Helsta stjarna þjóðverja, Dirk Nowitzki hefur gefið það út að hann ætli sér stóra hluti með landsliðinu á EM.
