29 nóv. 2014Fræðslunefnd KKÍ heldur málþing yngri flokka í dag, 29. nóvember, klukkan 10:00-14:00 í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal. Öllum sem áhuga hafa á málaflokknum er velkomið að mæta og taka þátt í umræðum og stefnumótun fyrir málaflokkinn. Þeir sem vilja geta sent spurningar inn á [p+]kki@kki.is[p-]kki@kki.is[slod-] og þeim verður varpað fram. Bein útsendinga verður á SportTV.is frá þinginu. Dagskrá málþingsins: 10:00: Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ opnar málþingið Eftirtaldir aðilar verða með 10-15 mínútna erindi: Guðbjörg Norðfjörð, formaður Fræðslunefndar KKÍ Ágúst S. Björgvinsson, reyndur yngri flokka þjálfari Stefán Arnarson, reyndur yngri flokka þjálfari Stefán Þór Borgþórsson, Mótastjóri KKÍ Snorri Örn Arnaldsson, reyndur yngri flokka þjálfari Að loknum erindum munu ofantaldir aðilar svara spurningum úr sal og þeim sem berast í gegnum tölvupóst. Nokkrir umræðuhópar munu síðan ræða: leikreglur, mótafyrirkomulag, fjölda leikmanna, verðlaun, getuskiptingu og fleira. Málþingið verður sent út beint á [v+]http://www.sporttv.is[v-]SportTv.is[slod-] og verður hægt að senda fyrirspurnir á [p+]kki@kki.is[p-]kki@kki.is[slod-] á meðan á málþinginu stendur.