25 nóv. 2014Fræðslunefnd KKÍ heldur málþing yngri flokka þann 29. nóvember klukkan 10:00-14:00 í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal. Dagskrá málþingsins: 10:00: Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ opnar málþingið Eftirtaldir aðilar verða með 10-15 mínútna erindi: Guðbjörg Norðfjörð, formaður Fræðslunefndar KKÍ Ágúst S. Björgvinsson, reyndur yngri flokka þjálfari Stefán Arnarson, reyndur yngri flokka þjálfari Stefán Þór Borgþórsson, Mótastjóri KKÍ Snorri Örn Arnaldsson, reyndur yngri flokka þjálfari Að loknum erindum munu ofantaldir aðilar svara spurningum úr sal og þeim sem berast í gegnum tölvupóst. Nokkrir umræðuhópar munu síðan ræða: leikreglur, mótafyrirkomulag, fjölda leikmanna, verðlaun, getuskiptingu og fleira. Málþingið verður sent út beint á [v+]http://www.sporttv.is[v-]SportTv.is[slod-] og verður hægt að senda fyrirspurnir á [p+]kki@kki.is[p-] kki@kki.is [slod-] á meðan á málþinginu stendur.