16 okt. 2014FIBA Europe dómarar og eftirlitsmaður okkar Íslendinga fengu úthlutuð verkefni í nóvember þegar þeir verða við störf í EuroChallenge Evrópukeppninni. Sigmundur Herbertsson fer til Svíþjóðar að dæma leik Boras Basket frá Svíþjóð og Okapi Aalstar frá Belgíu þann 11. nóvember í Boras og Leifur S. Garðarsson dæmir leik Kataja Basket frá Finnlandi sem mætir Benfica frá Portúgal í Joenssu í Finnlandi þann 18. nóvember. Pétur Hrafn Sigurðsson, eftirlitsmaður, verður svo við störf í Kotka í Finnlandi 4. nóvember á leik KPT og Bonprix Biella frá Ítalíu.