15 okt. 2014
Stöð 2 Sport mun sýna sex leiki á mánudögum fyrir áramót og svo fleiri leiki eftir áramót. Á mánudaginn kemur er komið að fyrsta leiknum og verður viðureign Keflavíkur og Stjörnunna í Domino's deild karla sýnd beint frá TM-höllinni í Keflavík. Beinar útsendingar á Stöð 2 Sport fram að áramótum Mánudagar - Domino's deild karla: 20. október: Keflavík-Stjarnan 27. október: Skallagrímur-Snæfell 10. nóvember: Njarðvík-Keflavík 24. nóvember: KR-Haukar 1. desember: Grindavík-Tindastóll 15. desember: Stjarnan-Njarðvík Einnig hefur KKÍ fengið SportTV.is til að sýna frá leikjum i Domino's deild karla og kvenna og Poweradebikar karla og kvenna á næstunni og verður það vel kynnt þegar þar að kemur.