13 okt. 2014
Í dag þriðjudaginn 14. október verður dregið í 32-liða úrslit Poweradebikarsins en drátturinn fer fram í fundarsal á 3. hæð íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardalnum og hefst drátturinn kl. 12.00. Nákvæmlega 32 lið eru skráð til leiks hjá körlum og því engin forkeppni neðri deildar liða í ár. 16 lið eru skráð til leiks hjá konum og verður dregið í viðureignir þeirra í næsta bikardrætti, og þá bæði í 16-liða úrslit karla og kvenna. Sýnt verður beint frá drættinum á [v+]http://www.sporttv.is[v-]Sporttv.is[slod-] Boðið verður upp á léttar veitingar fyrir gesti en Hannes S. Jónsson, formaður KKÍ, mun njóta aðstoðar tveggja reynslubolta úr Körfuboltafjölskyldunni við að draga í fyrstu umferð Poweradebikarsins en það verða þeir Kolbeinn Pálsson og Þórir Magnússon í verkefnið. Kolbeinn varð 7 sinnum bikarmeistari með KR 1970-1979 og Þórir þrisvar sinnum með Val á árunum 1980-1983.