15 sep. 2014
Bandaríkin eru heimsmeistarar í körfubolta eftir öruggan sigur á Serbíu í úrslitaleik HM 2014. Serbía byrjaði vel en síðan fóru leikmenn USA í gang og sýndu hvers þeir eru megnugir og litu aldrei til baka. Þeir verja því titilinn sinn frá Tyrklandi 2010 og eru þriðja liðið í sögunni sem afrekar það að vinna tvisvar í röð. [v+]http://www.karfan.is/read/2011/05/23/feitasti_bitinn_i_nylidavalinu_setti_52_stig_a_u18_ara_landslidid_2008 [v-]Íslandsvinurinn Kyrie Irving[slod-] var valinn besti maður mótsins en með honum í úrvalsliðinu voru þeir Pau Gasol, Spáni, Nicolas Batum, Frakklandi, Milos Teodosic, Serbíu og samherji hans úr bandaríska liðinu Kenneth Faried. Lokastaða 10 efstu liða á mótinu var eftirfarandi en þar voru 8 evrópulið sem Ísland getur mætt á EuroBasket 2015 næsta haust: 1. Bandaríkin 2. Serbía 3. Frakkaland ------------ 4. Litháen 5. Spánn 6. Brasilía 7. Slóvenía 8. Tyrkland 9. Grikkland 10. Króatía