10 sep. 2014RÚV hefur náð samningum við FIBA um beinar útsendingar frá lokaleikjum Heimsmeistaramótsins í körfubolta á Spáni. Undanúrslit mótsins hefjast á morgun og verða báðir undanúrslitaleikirnir, bronsleikurinn og úrslitaleikurinn sjálfur sýndir beint á RÚV íþróttum. Dagskráin RÚV íþrótta frá HM í körfubolta: Fimmtudagur 11. september kl. 19:00 · Bandaríkin gegn Litháen Föstudagur 12. september kl. 20:00 Frakkland/Spánn gegn Serbíu/Brasilíu (þessi lið mætast í 8-liða úrslitum í kvöld). Laugardagur 13. september kl. 16:00 Bronsleikurinn Sunnudagur 14. september kl. 19:00 Úrslitaleikurinn Leikina verður einnig hægt að sjá á netinu á www.ruv.is/beint