1 sep. 2014Íslenska körfuboltalandsliðið endaði landsliðsárið 2014 á því að tryggja sér sæti á sínu fyrsta stórmóti og körfuboltaáhugafólk getur strax farið að hlakka mikið til næsta árs þar sem Ísland verður með á EM 2015. Íslenska landsliðið lék sex leiki á árinu 2014 og vann fjóra þeirra. Íslenska liðið tapaði báðum leikjunum eftir hörkuleiki við gríðarsterkt lið Bosníumanna. Það var jöfn og hörð keppni um hver yrði myndi skora flest landsliðsstig á árinu 2014 og á endanum var það Logi Gunnarsson sem tryggði sér efsta sætið á listanum en það munaði ekki miklu á efstu mönnum. Logi skoraði 77 stig í leikjunum sex eða 12,8 stig að meðaltali en það er aðeins tveimur stigum meira en Haukur Helgi Pálsson skoraði (75 stig, 12,5 í leik). Hörður Axel Vilhjálmson var síðan í þriðja sætinu með 69 stig (11,5) og fjórði var síðan Martin Hermannsson með 59 stig (9,8 í leik). Jón Arnór Stefánsson spilaði aðeins tvo af þessum sex leikjum en varð engu að síður fimmti á listanum með 44 stig. Jón Arnór skoraði því 22,0 stig að meðaltali í leik. Logi var einnig sá sem skoraði flestar þriggja stiga körfur eða alls 13. Hörður Axel kom þar í öðru sæti með ellefu þrista og saman í þriðja sætinu voru þeir Haukur Helgi Pálsson og Pavel Ermolinskij eð sjö þriggja stiga körfur hvor. STIG LANDSMANNA ÍSLANDS ÁRIÐ 2014: Logi Gunnarsson 77 Haukur Helgi Pálsson 75 Hörður Axel Vilhjálmsson 69 Martin Hermannsson 59 Jón Arnór Stefánsson 44 Hlynur Bæringsson 42 Pavel Ermolinskij 32 Sigurður Þorvaldsson 10 Elvar Már Friðriksson 9 Sigurður Gunnar Þorsteinsson 8 Ragnar Nathanaelsson 7 Axel Kárason 7 Helgi Már Magnússon 3 Ólafur Ólafsson 2 ÞRIGGJA STIGA KÖRFUR LANDSMANNA ÍSLANDS ÁRIÐ 2014: Logi Gunnarsson 13 Hörður Axel Vilhjálmsson 11 Haukur Helgi Pálsson 7 Pavel Ermolinskij 7 Jón Arnór Stefánsson 6 Hlynur Bæringsson 3 Sigurður Þorvaldsson 2 Elvar Már Friðriksson 2 Axel Kárason 2 Martin Hermannsson 1 Helgi Már Magnússon 1