27 ágú. 2014
Mynd: Eva Björk Ægisdóttir Karlalandsliðið lék við Bosníu í kvöld í troðfullri Laugardalshöll. Með sigri hefði liðið gulltryggt sig inn á Evrópumótið á næsta ári. Ef liðið tapaði mátti tapið ekki vera stórt til að tryggja sætið. Niðurstaðan 70-78 fyrir Bosníu þýðir að Ísland er á leið á EuroBasket 2015. Fólk var byrjað að koma allt að 90 mínútum fyrir leik og húsið var orðið troðfullt vel fyrir leik. MIkil og góð stemning var í húsinu og áhorfendur settu svip sinn á leikinn. Sá mikli stuðningur sem var í stúkunni smitaðist til strákanna sem stóðu við sitt á móti. Frábær leikur allan tímann þar sem okkar strákar spiluðu frábæran körfubolta á köflum. Hlynur Bæringsson hóf leikinn en hann var greinilega þjáður og lék aðeins sjö mínútur í leiknum. Bosnía nýtti sér vel fjarveru Hlyns og sótti grimmt í teignum. Strákarnir náðu þó að verjast vel. Á lokasprettinum reyndust Bosníumenn sterkari og unnu 70-78. Um leið og lokaflautan gall fögnuðu þó bæði lið enda ljóst að bæði lið voru á leið á EM. Ísland verður þar með þátttakandi á EM í fyrsta sinn frá upphafi en leikið verður í september á næsta ári. Til hamingju Ísland