22 ágú. 2014Á morgun fer fram seinni æfingahelgi Úrvalsbúða KKÍ á tveim stöðum. Æfingar verða sem hér segir að þessu sinni: 23.-24. ágúst - Stúlkur í DB-Schenkerhöllinni Ásvöllum og drengir í Dalhúsum, Grafarvogi. Dagskráin er eftirfarandi fyrir laugardag og sunnudag: Krakkar f. '03 kl. 09.00 – 11.00 (æfing) Krakkar f. '02 kl. 11.30 – 13.30 (æfing) Krakkar f .'01 kl. 13.30 – 16.30 (fræðslufundur laugardag kl. 13.30 + æfing frá kl. 14.30) og svo bara æfing sunnudag kl. 14.30-16.30. Verð á hvern þátttakanda fyrir úrvalsbúðirnar er 6.000 kr. samtals fyrir báðar helgarnar og greiðist á staðnum hjá fulltrúa KKÍ. Hægt verður að greiða með korti. Búið er að skrá þá sem greiddu báðar helgar síðast og svo fram vegis og munu starfsmenn búðanna sjá um skráningu á staðnum.