22 ágú. 2014Jón Arnór Stefánsson skoraði 23 stig í sigrinum á Bretum í Koparkassanum á miðvikudagskvöldið en hann var stigahæsti leikmaður íslenska liðsins þrátt fyrir að byrja leikinn á bekknum. Jón Arnór kom inn á völlinn eftir þrjár og hálfa mínútu og var strax kominn með fimm stig eftir rúmar tvær mínútur inn í leiknum. Jón Arnór skoraði 9 stig á 12 mínútum í fyrri hálfleik og fylgdi því eftir með 14 stigum á 17 mínútum í þeim seinni en hann byrjaði seinni hálfleikinn. Með því að koma með þessi 23 stig af bekknum varð Jón Arnór fyrsti leikmaðurinn í tæp átta ár til að koma með 23 stig eða fleiri af varamannabekknum. Síðasti "varamaðurinn" sem náði þessu í leik með íslenska landsliðinu í Evrópukeppni var Logi Gunnarsson sem skoraði 23 stig í leik á móti Lúxemborg í Keflavík 13. september 2006. Enginn annar en Logi hafði náð að koma með 23 stig eða fleiri af bekknum í Evrópuleik undanfarin 19 ár en því hefur Logi alls náð þrisvar sinnum og þar á meðal skoraði hann 29 stig á 23 mínútum á móti Slóveníu í nóvember 2000. Þetta var samt önnur tuttugu stiga frammistaða íslensks leikmanns í Evrópuleikjum haustsins því Martin Hermannsson kom með 22 stig inn af bekknum í sigrinum á Bretum í fyrri leik liðanna í Laugardalshöllinni. Síðustu 23 stiga-mennirnir í Evrópuleik sem hafa byrjað á bekknum: 23 stig - Jón Arnór Stefánsson 20. ágúst 2014 á móti Bretlandi í London 23 stig - Logi Gunnarsson, 13. september 2006 á móti Lúxemborg í Keflavík 24 stig - Logi Gunnarsson, 29. ágúst 2001 á móti Sviss í Njarðvík 29 stig - Logi Gunnarsson, 29. nóvember 2000 á móti Slóveníu í Laugardalshöllinni 23 stig - Guðjón Skúlason, 25. maí 1995 á móti Portúgal í Lugano 35 stig - Guðjón Skúlason, 26. júní 1993 á móti Litháen í Vín 23 stig - Jón Arnar Ingvarsson, 4. maí 1991 á móti Noregi í Laugardalshöllinni