20 ágú. 2014Íslenska karlalandsliðið vann Breta í kvöld 69-71 í frábærum körfuknattleik. Eftir að hafa verið undir allan fyrri hálfleikinn sýndi liðið ótrúlega seiglu í þeim seinni og vann upp 14 stiga forskot Breta. Dramatíkin í lokin var engu lík en stórar körfur frá Herði Axeli og Jóni Arnóri Stefánssyni kláruðu Bretana. Þessi sigur þýðir að Ísland lendir aldrei neðar en í 2. sæti í A-riðli. Í undankeppninni eru sjö riðlar og fara sigurvegarar allra riðlanna áfram á Evrópumótið ásamt sex af sjö bestu sætunum í 2. sæti. Fyrir leik kvöldsins var Ísland með næst besta árangurinn af öllum liðunum í 2. sæti og við þessi úrslit styrkir liðið stöðu sína. En eru tvær umferðir eftir og Ísland á einn leik eftir gegn Bosníu í Laugardalshöllinni miðvikudaginn 27. ágúst. Stigahæstur hjá Íslandi var Jón Arnór Stefánsson með 23 stig og næstur honum var Hörður Axel Vilhjálmsson með 17 stig. Eins og áður segir er ekkert í hendi enn með sæti á Eurobasket, enn eru margir leikir eftir en vissulega jukustu möguleikarnir mikið með sigrinum í kvöld. Eftir leiki kvöldsins er staðan sú að Bosnía, Ísrael, Pólland, Belgía, Tékkland , Lettland og Ítalía fara áfram í 1. sæti. 2 lið eru með 2 sigra í 2. sæti, Ísland og Makedónía og þar eru Makedónar ofar með 1,0534 en Ísland er með 1,0237. Restin er með 1 sigur og þar eru Rússar með 1,2050, Þýskaland með 1,000, Georgía með 0,9595, Svartfjallaland með 0,9298 og eftir situr Rúmenía með 0,8875.