17 ágú. 2014Þrír leikmenn íslenska landsliðsins í körfubolta þekkja það betur en aðrir í liðinu að spila Evrópuleik í löndum fyrrum Júgóslavíu, Íslenska körfuboltalandsliðið er komið til Bosníu þar sem liðið mætir heimamönnum í kvöld í öðrum leik sínum í undankeppni Evrópumótsins 2015. Hlynur Bæringsson, Logi Gunnarsson og Sigurður Gunnar Þorsteinsson eru allir að fara spila sinn fjórða Evrópuleik á þessum slóðum. Hlynur eru sá eini af þeim þremur sem hefur náð að skora yfir tíu stig eða meðaltali í leik en hann hefur skorað 10,3 stig að meðaltali í þremur leikjum sínum í löndum fyrrum Júgóslavíu. Hlynur hefur verið fyrirliði í tveimur þessara leikja en Guðmundur Bragason var fyrirliði í þremur Evrópuleikjum Íslands í löndum fyrrum Júgóslavíu frá 1998 til 2000. Þeir Hlynur, Logi og Sigurður Gunnar jafna með þessu met þeirra Fals Harðarsonar, Friðriks Stefánssonar og Herberts Arnarsonar sem allir léku fjóra leiki á Balkanskaganum um aldarmótin. Teitur Örlygsson er aftur á móti sá leikmaður sem hefur skorað flest stig fyrir Ísland í löndum fyrrum Júgóslavíu en hann skoraði 56 stig í þremur leikjum eða 18,7 stig að meðaltali í leik. Flestir spilaðir Evrópuleikir í löndum fyrrum Júgóslavíu: Falur Harðarson 4 Friðrik Stefánsson 4 Herbert Arnarson 4 Hlynur Bæringsson 3 Fannar Ólafsson 3 Guðmundur Bragason 3 Helgi Már Magnússon 3 Hermann Hauksson 3 Hjörtur Harðarson 3 Jón Arnór Stefánsson 3 Logi Gunnarsson 3 Sigurður Gunnar Þorsteinsson 3 Teitur Örlygsson 3 Páll Axel Vilbergsson 3 Flest stig skoruð í Evrópuleikjum í löndum fyrrum Júgóslavíu: Teitur Örlygsson 56 (18,7 stig í leik - 3 leikir) Falur Harðarson 45 (11,3 í leik - 4 leikir) Herbert Arnarson 45 (11,3 í leik - 4 leikir) Guðmundur Bragason 39 (13,0 í leik - 3 leikir) Hlynur Bæringsson 31 (10,3 í leik - 3 leikir) Jakob Örn Sigurðarson 29 (14,5 í leik - 2 leikir) Jón Arnór Stefánsson 23 (7,7 í leik - 3 leikir) Helgi Jónas Guðfinnsson 23 (11,5 í leik - 2 leikir) Logi Gunnarsson 21 (7,0 í leik - 3 leikir) Hermann Hauksson 19 (6,3 í leik - 3 leikir) Helgi Már Magnússon 16 (5,3 í leik - 3 leikir) Haukur Helgi Pálsson 16 (8,0 í leik - 2 leikir)