
8 ágú. 2014Logi Gunnarsson og Helgi Már Magnússon eru tveir leikreyndustu leikmenn íslenska landsliðshópsins þó fyrirliðinn Hlynur Bæringsson komi ekki langt á eftir þeim tveimur. Ísland spilar sinn fyrsta leik í undankeppni Evrópukeppninnar á sunnudagskvöldið þegar Bretar koma í heimsókn í Laugardalshöllina og þá treystir liðið á reynslu þessara öflugu leikmanna. Logi og Helgi Már hafa mikla reynslu úr leikjum í Evrópukeppni en þeir hafa báðir rofið 30 leikja múrinn. Logi hefur spilað 42 landsleiki í Evrópukeppni og Helgi Már, sem kemur nú aftur inn í liðið eftir ársfjarveru, spilaði sinn þrítugasta leik í Evrópukeppni fyrir tveimur árum. Logi hefur skorað nákvæmlega 400 stig í þessum 42 leikjum sínum í Evrópukeppni eða 9,5 stig að meðaltali í leik. Helgi Már hefur skorað 175 stig í sínum 30 leikjum í Evrópukeppni sem gera 5,8 stig að meðaltali í leik. Landsliðsfyrirliðinn Hlynur Bæringsson bætist í 30 leikja hópinn í þessari keppni en að öllu eðlilegu spilar hann sinn þrítugasta leik út í Bosníu í öðrum leik Íslands í undankepppninni. Flestir leikir í Evrópukeppni í íslenska hópnum 2014: Logi Gunnarsson 42 Helgi Már Magnússon 30 Hlynur Bæringsson 28 Sigurður Gunnar Þorsteinsson 22 Pavel Ermolinskij 16 Haukur Helgi Pálsson 14 Axel Kárason 14 Sigurður Þorvaldsson 10 Hörður Axel Vilhjálmsson 8


