
8 ágú. 2014Íþróttafélagið Hörður á Patreksfirði óskar eftir að ráða þjálfara fyrir eldri hópa í körfubolta í vetur. Til eldri hópa teljast börn sem eru 11 ára og eldri og taka þátt í Íslandsmótinu. Löng hefð er fyrir körfuboltaiðkun á Patreksfirði og þess vegna óskum við eftir áhugasömum einstaklingi til þess að viðhalda hefðinni. Fyrir áhugasama má nálgast nánari upplýsingar hjá formanni félagsins, Margréti Brynjólfsdóttur, í síma 698-9913 eða með tölvupósti á maggabr@gmail.com.


