6 ágú. 2014Allir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta KKÍ þurfa að nálgast miða sína fyrirfram fyrir landsleikina framundan í undanriðili EuroBasket 2015. Leikirnir eru ÍSLAND-Bretland sunnudaginn 10. ágúst kl. 19.00 og ÍSLAND-Bosnía miðvikudaginn 27. ágúst kl. 19.00. Hægt er að nálgast miðana fyrir báða leikina á sama tíma. Ekki verður hleypt inn á leikdegi gegn framvísun aðgönguskírteina/boðskorta, heldur verður aðeins tekið við fyrirfram prentuðum miðum fyrir viðburðinn. Handhafar aðgönguskírteina/boðskorta geta sótt miða fyrir leikina í eigin persónu föstudaginn 8. ágúst á skrifstofu KKÍ á milli kl. 14.00-16.00. Handhafar korta sem búa utan höfuðborgarsvæðis: Þeir handhafar aðgönguskírteina/boðskorta sem búa utan höfuðborgarsvæðisins geta sent tölvupóst skrifstofu KKÍ á sama tíma (Á milli 14.00-16.00) til þess að láta taka frá fyrir sig miða á báða leikina sem síðan verður hægt að nálgast í Laugardalshöll frá kl. 18.00 í Laugardalshöll á undan leik Íslands og Bretlands sem og leik Íslands og Bosníu. Tölvupóstinn skal senda á [p+]kki@kki.is[p-] kki@kki.is[slod-]. Í reglugerð um aðgönguskírteini segir meðal annars: „Þegar um bikarúrslit og landsleiki er að ræða getur KKÍ krafist þess að rétthafar skírteina sæki aðgöngumiða gegn framvísun skírteinis og gilda þá ekki aðgönguskírteinin sjálf. Slíkt fyrirkomulag skal auglýst á heimasíðu KKÍ sem og í tölvupósti til félaga KKÍ.“ Hægt er að nálgast reglugerðina í heild sinni á vef KKÍ.