22 júl. 2014Mótanefnd auglýsir lausar helgar fyrir minniboltamót félaga 2014-15. Þau félög sem óska eftir því að halda mót verða að skila inn umsókn á kki@kki.is fyrir fimmtudaginn 7. ágúst 2014. Í umsókn þarf að koma fram nafn á móti, sú helgi sem óskað er eftir og fyrir hvaða aldurshóp viðkomandi mót er. Ef fleiri en tvö félög óska eftir sömu helgi mun mótanefnd úthluta helginni. Ef félög óska eftir að halda mót aðrar helgar þá þarf að hafa samband sérstaklega og óska eftir þeim. Lausar helgar veturinn 2014-15 4.-5. október 1.-2. nóvember 29.-30. nóvember 6.-7. desember 13.-14. desember 20.-21. desember 3.-4. janúar 10.-11. janúar 17.-18. janúar 24.-25. Janúar 31. janúar- 1. febrúar 7.-8. mars 14.-15 mars