19 júl. 2014Íslenska kvennalandsliðið mætir heimamönnum í Austurríki í kvöld í úrslitaleiknum í Evrópukeppni Smáþjóða í St. Pölten en bæði lið hafa unnið alla leiki sína í keppninni. Leikurinn hefst klukkan 17.00 að íslenskum tíma. Ísland vann 26 stiga sigur á Skotlandi í undanúrslitunum í gær, 85-59, en Austurríki komst í úrslitaleikinn eftir 12 stiga sigur í jöfnum leik á móti Möltu, 58-46. Malta var yfir 39-36 þegar þrettán mínútur voru eftir en Austurríki vann lokakafla leiksins 22-7. Þetta er í þriðja sinn í röð sem íslenska liðið kemst í úrslitaleikinn í Evrópukeppni Smáþjóða en íslenska kvennalandsliðið tapaði fyrir Albaníu í úrslitaleik árið 2002 og vann Lúxemborg í úrslitaleik tveimur árum síðar. Íslenska liðið spilaði einnig úrslitaleikinn á Möltu árið 1996 og vann þá Albaníu í úrslitaleik. Austurríki hefur titil að verja en austurríska liðið vann þetta mót fyrir tveimur árum og hefur nú unnið sjö síðustu leiki sína í Evrópukeppni Smáþjóða. Austurrísku stelpurnar hafa fengið ágætan stuðning í leikjum sínum á mótinu og það verður örugglega fín stemmning í gullleiknum í kvöld. Íslensku stelpurnar geta ekki bara tryggt sér gullið í kvöld því þær geta einnig unnið sögulegan sigur. Íslenska kvennalandsliðið hefur aldrei unnið Austurríki en allir fjórir leikirnir hafa tapast þar á meðal með 20 stiga mun (45-65) þegar þjóðirnar mættust síðasta sem var í Evrópukeppni Smáþjóða í Austurríki árið 1998. Leikur Íslands og Austurríki hefst klukkan 17.00 að íslenskum tíma. Hann verður í beinni tölfræðilýsingu á heimasíðu FIBA Europe og að eins og í hinum leikjunum er hægt að horfa á þá beint í gegnum netið. Úrslitaleikurinn verður aðgengilegur [v+]http://new.livestream.com/seq/ecscw-15a [v-]hérna[slod-]. Flestir sigrar í Evrópukeppni Smáþjóða kvenna: 4 - Austurríki (1989, 1993, 2012) 2 - Ísland (1996, 2004) 2 - Malta (2008, 2010) 1 - Tyrkland (1991) 1 - Albanía (2002) 1 - Lúxemborg (2006) Flestir úrslitaleikir í Evrópukeppni Smáþjóða kvenna: 5 - Austurríki: Gull (1989, 1993, 2012) - Silfur (-) + 2014 4 - Ísland: Gull (1996, 2004) - Silfur (2002) + 2014 3 - Albanía: Gull (2002) - Silfur (1996, 2008) 3 - Lúxemborg: Gull (2006) - Silfur (1998, 2004) 3 - Írland: Gull (-) - Silfur (1989, 1991, 1993) 2 - Malta: Gull (2008, 2010) - Silfur (-) 1 - Tyrkland: Gull (1991) - Silfur (-) 1 - Makedónía: Gull (-) - Silfur (2012) 1 - Armenía: Gull (-) - Silfur (2010) 1 - Skotland: Gull (-) - Silfur (2006) Gengi íslenska kvennalandsliðsins í Evrópukeppni Smáþjóða: 2014 - ??? 2004 - 1. sæti 2002 - 2. sæti 1998 - 4. sæti 1996 - 1. sæti 1993 - 4. sæti 1991 - 5. sæti 1989 - 4. sæti