18 júl. 2014Íslenska kvennalandsliðið er komið í úrslitaleikinn í Evrópukeppni Smáþjóða eftir 26 stiga sigur á Skotum, 85-59, í undanúrslitaleiknum í dag. Ísland mætir annaðhvort Austurríki eða Möltu í úrslitaleiknum á morgun en seinni undanúrslitaleikurinn fór fram eftir leik íslensku stelpnanna. Helena Sverrisdóttir lék sinn fimmtugasta A-landsleik og hélt upp á það með því að gæla við þrennuna en hún var með 16 stig, 8 fráköst og 8 stoðsendingar í þessum örugga sigri. Helena var efst hjá Íslandi í öllum þessum tölfræðiþáttum. Hildur Björg Kjartansdóttir, Pálína Gunnlaugsdóttir og Kristún Sigurjónsdóttir voru allar með 10 stig en Kristrún hélt uppi heiðri bekkjarins sem hefur skilað tíu stiga leikmanni í öllum þremur leikjum Íslands á mótinu. Skoska liðið komst aldrei yfir í leiknum og sigur íslenska liðsins var mjög sannfærandi. Íslensku stelpurnar hafa oft hitt betur (35 prósent, 30 af 85) en þær börðust allar vel í fráköstunum (22 sóknarfráköst, +11 í fráköstum) og létu ekki furðulega dóma fara of mikið í taugarnar á sér. Sóknafráköstin skiluðu 23 stigum í nýjum sóknum sem var 20 stigum meira en skoska liðið fékk eftir sín sóknarfráköst. Ívar Ásgrímsson spilaði á öllu liðinu og allar komust á blað nema Marín Laufey Davíðsdóttir. Marín tók aftur á móti 3 sóknarfráköst á þeim 4 mínútum sem hún spilaði. Íslenska liðið vann alla fjóra leikhlutana þar af fyrsta leikhlutann 22-13 og þriðja leikhlutann 22-11. Íslenska liðið fékk dæmdar á sig fimm sóknarvillur í fyrri hálfleik en breiddin í liðinu er mikil og því fann íslenska liðið ekki mikið fyrir villuvandræðunum. Ísland var þrettán stigum yfir í hálfleik, 40-27, og svo voru stelpurnar komnar með 62-38 stiga forskot (+24) fyrir lokaleikhlutann. Ísland spilar úrslitaleikinn klukkan 17.00 á morgun að íslenskum tíma. Þetta verður jafnfram fyrsti kvöldleikur liðsins í mótinu en leikir liðsins hafa hingað til farið fram fyrr um daginn. Íslensku stelpurnar ætla sér gullið en vita vel að þær þurfa betri leik á morgun ætli þær sér að vinna titilinn í ár. Ívar og stelpurnar fara vel yfir málin, laga það sem miður fór og mæta hungraðar í gullið í leikinn á morgun. Tölfræði íslenska liðsins: Helena Sverrisdóttir - 16 stig, 8 fráköst, 8 stoðsendingar, 4 stolnir Hildur Björg Kjartansdóttir - 10 stig, 7 fráköst Pálína Gunnlaugsdóttir - 10 stig Kristrún Sigurjónsdóttir - 10 stig, hitti úr 2 af 2 þriggja stiga skotum Bryndís Guðmundsdóttir - 8 stig, 8 fráköst Hildur Sigurðardóttir - 8 stig, 5 stoðsendingar María Ben Erlingsdóttir - 8 stig Ragna Margrét Brynjarsdóttir - 6 stig Gunnhildur Gunnarsdóttir - 5 stig Sigrún Sjöfn Ámunadóttir - 3 stig, 7 fráköst, 3 stolnir Margrét Rósa Hálfdanardóttir - 1 stig, 5 villur Marín Laufey Davíðsdóttir - 4 fráköst á 4 mínútum
Hildur Björg Kjartansdóttir og Kristrún Sigurjónsdóttir.