17 júl. 2014Fyrsti leikhluti fór í að átta sig á leiknum og andstæðingum okka, Ísraelum, og endaði hann 21-12 fyrir Ísrael. Í öðrum leikhluta voru íslensku stelpurnar óheppnar og munurinn jókst jafnt og þétt og staðan í hálfleik var 39-20. Stelpurnar mættu þó tvíelfdar til leiks í seinni hálfleik og voru ekki á þeim buxunum að leyfa Ísraelunum að ná meiri forystu. Íslenska liðið náði jafnt og þétt að minnka muninn og unnum við þriðja leikhluta með fjórum stigum 14-18. Íslensku stelpurnar sýndu hörku baráttu og þvinguðu andstæðingana í léleg skot og til að tapa boltanum hvað eftir annað. Í fjórða leikhluta gáfu andstæðingarnir í og veittu baráttuglöðum Íslendingum mótspyrnu og endaði leikurinn því með 22 stiga tapi 76-52. Íslenska liðið var með 32 tapaða bolta og eru þær staðráðnar í að gera betur í næsta leik! Stigaskor: Sara Rún 16 stig(10 fráköst,3 stolnir boltar) Sandra Lind 9 stig (8 fráköst, 3 stoðsendingar) Þóra Kristín 9 stig (6 fráköst) Elsa Rún 6 stig(4 fráköst) Guðlaug Björt 6 stig Sólrún Inga 3 stig Margrét Ósk 3 stig Þjálfarateymið var sammála um að velja Þóru Kristínu mann leiksins enda barðist hún eins og ljón á báðum endum vallarins og fékk hún fána Ísraelska körfuknattleikssambandsins í verðlaun – áritaðan af íslenska liðinu. Á morgun er frídagur og verður hann nýttur í undirbúning fyrir næsta leik sem er á laugardaginn kl. 20:15 (17:15 á Íslandi) á móti Englandi.