12 júl. 2014Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta er á leiðinni til Austurríkis þar sem íslenska liðið tekur þátt í Evrópukeppni smáþjóða sem fer að þessu sinni fram í St. Pölten. Fyrsti leikur liðsins er á mánudaginn en liðið fer á morgun sunnudag. Íslenska liðið er með í fyrsta sinn í þessari keppni í áratug en liðið missti aðeins af einni keppni á árunum 1989 til 2004. Íslensku stelpurnar hafa unnið þessa keppni tvisvar sinnum, 1996 og 2004, auk þess sem að íslenska liðið spilaði til úrslita í keppninni 2002 en varð þá að sætta sig við silfrið. Það eru aðeins heimamenn í Austurríki sem hafa oftar unnið Evrópukeppni smáþjóða en þeir eru að reyna að vinna hana í fimmta sinn í St. Pölten. Austurríkismenn unnu glæsilegan sigur þegar þeir héldu keppnina síðast árið 1998. Ísland er í 2. til 3. sæti yfir sigursælustu þjóðirnar ásamt Möltu en Malta verður einmit fyrsti mótherji íslenska liðsins í St. Pölten. Malta vann mótið 2008 og 2010 og er eina þjóðin sem hefur unnið tvær keppnir í röð. Flestir sigrar í Evrópukeppni smáþjóða: 4 - Austurríki (1989, 1993, 2012) 2 - Ísland (1996, 2004) 2 - Malta (2008, 2010) 1 - Tyrkland (1991) 1 - Albanía (2002) 1 - Lúxemborg (2006) Gengi íslenska kvennalandsliðsins í Evrópukeppni smáþjóða: 2004 - 1. sæti 2002 - 2. sæti 1998 - 4. sæti 1996 - 1. sæti 1993 - 4. sæti 1991 - 5. sæti 1989 - 4. sæti