10 júl. 2014Íþróttahúsið í Stykkishólmi verður tíunda húsið á Íslandi til að hýsa kvennalandsleik þegar Ísland mætir þar Danmörku í æfingalandsleik í kvöld. Liðin mættust á Ásvöllum í gærkvöldi en spila sögulegan leik í Hólminum í kvöld. Stykkishólmur er heimili Íslandsmeistara Snæfells og með íslenska liðinu spila þrír Hólmarar og íslensku stelpurnar ættu því að fá góðan stuðning í kvöld. Þetta verður líka aðeins í annað skiptið í sögu kvennalandsliðsins sem liðið spilar heimaleik norðan Hvalfjarðar. Eini leikurinn hingað til sem fór ekki fram á suðvestur-horninu var spilaður á Akranesi í árslok 1995. Eistar komu þá í heimsókn og léku þrjá æfingaleiki hjá bæði karla- og kvennaliðum á milli jóla og nýárs. Tveir þeir fyrstu hjá stelpunum töpuðust stórt í Keflavík og Seljaskóla, sá fyrri með 27 stigum en sá síðari með 33 stigum. Besti leikur liðsins var sá síðasti á Akranesi sem tapaðist naumlega með tveimur stigum. Anna María Sveinsdóttir var stigahæst hjá islenska liðinu með 20 stig. Þetta voru fyrstu landsleikir liðsins undir stjórn Sigurðar Ingimundarsonar sem er enn í dag sá þjálfari sem hefur stýrt liðinu í flestum leikjum. Þetta voru líka fyrstu landsleikir Birnu Valgarðsdóttur sem er leikjahæsti leikmaður kvennalandsliðsins. Heimaleikir kvennalandsliðsins eftir húsum: Ásvellir 8 Keflavík 6 Smárinn 5 DHL-Höllin 2 Seljaskóli 1 Njarðvík 1 Hagaskóli 1 Grindavík 1 Akranes 1