10 júl. 2014Í gærkvöldi á leik Íslands og Danmerkur á Ásvöllum afhenti KKÍ þremur aðilum silfurmerki sambandsins. Fá þau öll silfurmerkið fyrir mikla og góða vinnu fyrir körfuknattleikshreyfinguna. Það var Hannes S. Jónsson, formaður, og Guðbjörg Norðfjörð, varaformaður, sem afhenti þeim Bylgju Sverrisdóttur, Karli Guðlaugssyni og Gísla Guðlaugssyni silfurmerkin. Til hamingju Bylgja, Karl og Gísli.