9 júl. 2014Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta tapaði með 31 stigi á móti Dönum, 53-84, í æfingaleik á Ásvöllum í kvöld en þetta var fyrsti leikur stelpnanna á árinu og ennfremur fyrsti heimaleikur íslenska kvennalandsliðsins í tæp fimm ár. Helena Sverrisdóttir var stigahæst hjá íslenska liðinu með 14 stig og 7 fráköst en Kristrún Sigurjónsdóttir kom með 12 stig inn af bekknum og þá skoraði Hildur Björg Kjartansdóttir 8 stig. Liðin mætast aftur í Hólminum á morgun og þá ná íslensku stelpurnar vonandi að sýna miklu meira en þær gerðu í leiknum í kvöld. Íslensku stelpurnar fengu flottan stuðning í kvöld því það var vel mætt á leikinn á Ásvöllum. Því miður náði liðið sér ekki á strik á móti sterku dönsku liði sem lokaði flestum leiðum með góðri vörn og raðaði síðan niður körfunum í seinni hálfleiknum. Íslensku stelpurnar byrjuðu leikinn samt ágætlega því þær komust í 16-9 og voru 16-12 yfir eftir fyrsta leikhlutann. Íslenska liðið var átta stigum yfir, 24-16, þegar fjórar mínútur voru til hálfleiks. Danska liðið kom muninum niður í tvö stig fyrir hálfleik, 28-26, og keyrði síðan yfir íslenska liðið í þriðja leikhlutanum sem þær dönsku unnu 30-12. Íslensku stelpurnar komust reyndar í 33-28, en þá komu tólf dönsku stig í röð og eftir það lék allt í höndunum á danska liðinu á meðan ekkert gekk hjá þeim íslensku. Danir bættu bara við í lokaleikhlutanum sem þær unnu 28-13 og munurinn var því 31 stig í lokin. Danska liðið hitti út 67 prósent skota sinna í seinni hálfleiknum og skaut hreinlega íslensku stelpurnar í kaf í tveimur síðustu leikhlutunum. Íslenska liðið tapaði alls 30 boltum í leiknum eða sextán fleiri en danska liðið og þessi vandræði í sókninni voru liðinu afar dýrkeypt. Danir hittu vissulega vel í seinni hálfleiknum en fengu líka alltaf opin færi þegar íslenska liðið missti algjörlega dampinn í mótlætinu. Hrannar Hólm er þjálfari danska liðsins og hann er á góðri leið með dönsku stelpurnar sem spiluðu mjög flottan leik í kvöld, voru grimmar í vörninni og spiluðu síðan mjög vel saman í sókninni. Helsta tölfræði íslensku stelpnanna í leiknum: Helena Sverrisdóttir - 14 stig og 7 fráköst Kristrún Sigurjónsdóttir - 12 stig, hitti úr 4 af 6 skotum sínum Hildur Björg Kjartansdóttir - 8 stig Hildur Sigurðardóttir - 5 stig, 5 stoðsendingar og 3 stolnir Pálína Gunnlaugsdóttir - 5 stig Bryndís Guðmundsdóttir - 4 stig, 3 fráköst og 3 stoðsendingar Ragna Margrét Brynjarsdóttir - 2 stig María Ben Erlingsdóttir - 2 stig Sigrún Sjöfn Ámundadóttir - 1 stig Gunnhildur Gunnarsdóttir, Marín Laufey Davíðsdóttir og Margrét Rósa Hálfdanardóttir spiluðu allar en skoruðu ekki. Það er hægt að sjá alla tölfræði leiksins með því að smella [v+]http://www.kki.is/widgets_game.asp?league_id=undefined&season_id=89591&game_id=2931205#mbt:6-400$t&0=1[v-]hér[slod-].