8 júl. 2014Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta mætir því danska í æfingaleik á Ásvöllum klukkan 19.15 annað kvöld og vonandi gengur eins vel og þegar íslenska kvennalandsliðið spilaði síðast á Ásvöllum. Það eru liðin tæp fimm ár síðan íslensku stelpurnar spiluðu síðast landsleik á Íslandi en liðið tapaði þá fyrir Svartfjallalandi í Smárunum. Þremur dögum fyrr vann íslenska liðið hinsvegar flottan 77-68 sigur á Írlandi en það er einmitt síðasti leikur kvennalandsliðsins á Ásvöllum. Helena Sverrisdóttir, fyrirliði liðsins í dag, var að gæla við þrennuna í þeim leik en hún var þá með 14 stig, 10 stoðsendingar og 7 fráköst. Stigahæst var aftur á móti Birna Valgarðsdóttir, leikjahæsti leikmaður kvennalandsliðsins frá upphafi, en Birna skoraði 21 stig og tók 11 fráköst í þessum leik. Þetta verður áttundi leikur A-landsliðs kvenna á Ásvöllum og hefur liðið þegar fagnað þrisvar sinnum sigri í húsinu. Leikina sjö má sjá hér fyrir neðan. Leikir kvennalandsliðsins á Ásvöllum: 26. ágúst 2009: 77-68 sigur á Írlandi 19. ágúst 2009: 52-70 tap fyrir Hollandi 3. september 2008: 69-94 tap fyrir Slóveníu 27. ágúst 2008: 68-53 sigur á Sviss 1. september 2007: 52-73 tap fyrir Hollandi 30. maí 2004: 53-58 tap fyrir Englandi 25. maí 2003: 55-52 sigur á Noregi Samtals: 3 sigrar í 7 leikjum