8 júl. 2014Íslenska kvennalandsliðið mætir Danmörku í æfingaleik á Ásvöllum annað kvöld en þar ætti stór hluti íslenska liðsins að kannast vel við sig. Leikurinn hefst klukkan 19.15 og er fyrri leikur þjóðanna en sá síðari fer fram í Stykkishólmi á sama tíma á fimmtudag. Leikurinn annað kvöld verður sá fyrsti á Íslandi í níu ár og sá fyrsti hjá stelpunum á Ásvöllum síðan þær unnu þar Írland 26. ágúst 2009. Átta af þrettán úr leikmannahópi Ívars Ásgrímssonar fyrir þessa tvo æfingaleiki við Dana hafa haft Íþróttahúsið á Ásvöllum fyrir heimavöll sinn með sínu félagsliði. Haukastelpurnar Gunnhildur Gunnarsdóttir og Margrét Rósa Hálfdanardóttir eru í hópnum en einnig þær Ragna Margrét Brynjarsdóttir, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir, Pálína Gunnlaugsdóttir, Kristrún Sigurjónsdóttir, Guðbjörg Sverrisdóttir og síðast en ekki síst Helena Sverrisdóttir sem allir léku með Haukum á árum áður. Það eru því aðeins þær Hildur Sigurðardóttir, Bryndís Guðmundsdóttir, María Ben Erlingsdóttir, Hildur Björg Kjartansdóttir og Marín Laufey Davíðsdóttir sem hafa ekki haft Ásvelli fyrir heimavöll á sínum félagsliðaferli. Þrjár þær fyrstnefndu hafa þó spilað þar heimaleik með íslenska landsliðinu.