
7 júl. 2014Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta mætir því danska í æfingaleik á Ásvöllum klukkan 19.15 á miðvikudagskvöld og það er óhætt að segja að stelpurnar okkar bíði spenntar eftir því að spila á heimavelli. Leikurinn við Dani verður nefnilega fyrsti heimaleikur kvennalandsliðsins frá 29. ágúst 2009 eða frá því þegar íslenska liðið mætti sterku liði Svarfjallalands í undankeppni EM. Sá leikur fór fram í Smáranum í Kópavogi. Fimm leikmenn íslenska liðsins í dag spiluðu einnig þennan leik fyrir tæpum fimm árum en það eru fyrirliðinn Helena Sverrisdóttir, Hildur Sigurðardóttir, Kristún Sigurjónsdóttir, Sigrún Sjöfn Ámundadóttir og Ragna Margrét Brynarsdóttir. Stelpurnar töpuðu leiknum á móti Svartfjallandi 62-77 og var Helena Sverrisdóttir stigahæst með 23 stig. Hér fyrir neðan má sjá lista yfir fjölda landsleikja sem stelpurnar í landsliðinu í dag hafa spilað á heimavelli á sínum landsliðsferli en það er mjög gaman fyrir þær að fá á ný tækifæri til að spila fyrir íslenska áhorfendur. Landsleikir leikmanna hópsins á Íslandi: Hildur Sigurðardóttir 17 Helena Sverrisdóttir 11 María Ben Erlingsdóttir 10 Kristrún Sigurjónsdóttir 10 Bryndís Guðmundsdóttir 7 Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 6 Ragna Margrét Brynjarsdóttir 5 Pálína Gunnlaugsdóttir 5 Gunnhildur Gunnarsdóttir 0 Hildur Björg Kjartansdóttir 0 Marín Laufey Davíðsdóttir 0 Margrét Rósa Hálfdanardóttir 0 Guðbjörg Sverrisdóttir 0


