3 júl. 2014Stelpurnar í kvennalandsliðinu eru á fullu þessa dagana að undirbúa sig fyrir verkefni sumarsins. Í næstu viku spila þær tvo leiki við Dani áður en þær halda til Austurríkis að keppa á Evrópumóti smáþjóða. Þrátt fyrir annríki hafa þær gefið sér tíma til að heimsækja sumaræfingar félaganna og spjalla við krakkana. Hefur þeim verið frábærlega tekið hvar sem þær hafa komið. Það er mikil gróska í sumarstarfi félaganna og hafa stelpurnar því náð að hitta fullt af krökkum.