19 jún. 2014U15 ára lið Íslands í stúlkna- og drengjaflokki hefja leik á Kaupmannahafnarmótinu á morgun. Liðin eru komin til Kaupmannahafnar en þau lögðu af stað í nótt. Ísland hefur tekið þátt í mótinu frá árinu 2008. Á mótinu taka þátt landslið sem og úrvalslið borga og eða héraða. Bæð lið eru í fjögurra liða riðli og klárast riðlakeppnin á laugardag en þá hefjast úrslit. Úrslitaleikir eru svo leiknir á sunnudag. Mótið er sterkt og er fyrsta stig landsliðsverkefna KKÍ. Ísland hefur titil að verja í keppni U15 ára stúlkna en íslenska liðið vann þetta mót fyrir ári síðan. Drengjalið Íslands hafa fagnað sigri á mótinu tvívegis á síðustu árum. Heimasíða mótsins er [v+]http://www.cph-invitational.dk/ [v-]www.cph-invitational.dk[slod-]. Leikir · Ísland U15 stúlkur: Föstudagur 11.15(Ísl. tími) Ísland-Danmörk 18.15(Ísl. tími) Ísland-Svíþjóð bláir Laugardagur 10.15(Ísl. tími) Ísland-Finnland hvítir Spilað um sæti seinni partinn Leikir · Ísland U15 drengir Föstudagur 10.45(Ísl. tími) Ísland-Værlöse 16.45(Ísl. tími) Ísland-Finnland bláir Laugardagur 8.15(Ísl. tími) Ísland-Holland Spilað um sæti seinni partinn Landslið U15-stúlkna Andrea Dögg Einarsdóttir · Keflavík/Hickory High School, USA Anna Lóa Óskarsdóttir · Haukar · 172 cm Ásdís Karen Halldórsdóttir · KR · 172 cm Birna Valgerður Benónýsdóttir · Keflavík · 184 cm Birta Rós Davíðsdóttir · Keflavík · 172 cm Hera Sóley Sölvadóttir · Njarðvík · 172 cm Jónína Þórdís Karlsdóttir · Ármann · 168 cm Katla Rún Garðarsdóttir · Keflavík · 167 cm Ragnheiður Björk Einarsdóttir · Hrunamenn · 184 cm Þóranna Kika Hodge-Carr · Keflavík · 170 cm Þórdís Jóna Kristjánsdóttir · Hrunamenn · 171 cm Sædís Gunnarsdóttir · Þór Akureyri · 167 cm Þjálfari · Margrét Sturlaugsdóttir Aðstoðarþjálfari · Atli Geir Júlíusson U15-drengja Birkir Thor Björnsson · KR · 193 cm Davíð Alexander Magnússon · Fjölnir · 181 cm Egill Agnar Októsson · Stjarnan · 189 cm Gabríel Sindri Möller · Njarðvík · 172 cm Guðjón Hlynur Sigurðarson · Ármann · 184 cm Hákon Örn Hjálmarsson · ÍR · 184 cm Helgi Guðjónsson · Reykdælir · 176 cm Nökkvi Már Nökkvason · Grindavík · 182 cm Sigmar Jóhann Bjarnason · Fjölnir · 189 cm Stefán Alexander Ljubicic · Keflavík · 188 cm Þorbjörn Óskar Arnmundsson · Keflavík · 192 cm Þorgeir Þorsteinsson · Reykdælir · 203 cm Þjálfari · Ingi Þór Steinþórsson Aðstoðarþjálfari · Viðar Örn Hafsteinsson Hægt er að fá nánari upplýsingar hjá eftirfarandi: Ingi Þór Steinþórsson s. 860-1885 Margrét Sturlaugsdóttir s. 898-4468