12 jún. 2014Um helgina verða Afreksbúðir KKÍ haldnar á Álftanesi fyrir leikmenn sem boðaðir hafa verið og eru fæddir árið 2000. Um er að ræða 50 manna hópa stúkna og drengja sem æfa í sitthvoru lagi. Yfirþjálfarar búðanna eru Helena Sverrisdóttir hjá stúlkunum og Jóhannes Kristbjörnsson hjá drengjum. Þau njóta aðstoðar reyndra þjálfara að auki. Stelpur og strákar æfa tvisvar sinnum hvorn dag og til skiptist. Æfingatímar hópanna eru eftirfarandi: 14. og 15. júní Stúlkur: Laugardagur · kl. 10:15-12:00 og 14:00-16:00 Sunnudagur · kl. 12:00-14:00 og 16:00-18:00 Strákar: Laugardagur · kl. 12:00-14:00 og 16:00-18:00 Sunnudagur · 10:15-12:00 og 14:00-16:00