30 maí 2014Finnskur er í dag hjá íslensku liðunum á Norðurlandamótinu í Solna. Strákarnir í U16 byrja kl. 13.00 að íslenskum tíma og svo spila U16 stelpur og U18 strákar kl. 15.00 og svo loka stelpurnar í U18 deginum kl. 17.00. Finnar eru búnir að vinna alla leiki sína á mótinu til þessa og því mætast ósigruð lið í þremur flokkum í dag eða í U16 drengjum, U18 drengjum og svo U16 stúlkum. Fylgst verður með leikjunum á kki.is sem og á Facebook síðu KKÍ. Einnig verður lifandi tölfræði úr öllum leikjunum. Áfram Ísland