20 maí 2014Á morgun er vika í brottför íslensku landsliðanna sem fara á NM 2014 í Solna, Svíþjóð. U16 og U18 lið drengja og stúlkna heldur þá út og hefja leik um kvöldið í Solnahallen, heimavelli Solna Vikings, þar sem mótið hefur verið haldi undanfarin áratug í umsjón klúbbsins og sænska sambandsins. Liðin hafa verið að æfa undanfarnar helgar og æfa fram að brottför. Hér fyrir neðan er leikjadagskrá liðanna en allir leikir verða í beinni tölfræðilýsingu á hinu sænska baskethotel og verður aðgengilegt beint á kki.is á meðan mótið stendur yfir. Áfram verður unnið með hvern dag gegn ákveðinni þjóð og er fyrsti leikdagur gegn Eistlandi hjá öllum liðunum og því næst er það Noregur, Finnland, Svíþjóð og loks Danmörk á sunnudeginum sem okkar lið mæta á hverjum keppnisdegi. Leikjadagskráin er eftirfarandi: (allir leiktímar á íslenskum tíma) U16 stúlkna 28. maí · 19:00 Ísland-Eistland 29. maí · 11:00 Ísland-Noregur 30. maí · 15:00 Ísland-Finnland 31. maí · 13:00 Ísland-Svíþjóð 1. júní · 12:30 Ísland-Danmörk U16 drengja 28. maí · 17:00 Ísland-Eistland 29. maí · 09:00 Ísland-Noregur 30. maí · 13:00 Ísland-Finnland 31. maí · 11:00 Ísland-Svíþjóð 1. júní · 11:45 Ísland-Danmörk U18 kvenna 28. maí · 15:00 Ísland-Eistland 29. maí · 15:00 Ísland-Noregur 30. maí · 17:00 Ísland-Finnland 31. maí · 15:00 Ísland-Svíþjóð 1. júní · 12:30 Ísland-Danmörk U18 karla 28. maí · 17:00 Ísland-Eistland 29. maí · 17:00 Ísland-Noregur 30. maí · 15:00 Ísland-Finnland 31. maí · 17:00 Ísland-Svíþjóð 1. júní · 14:15 Ísland-Danmörk